Innlent

Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Háhyrningurinn í fjörunni í gærkvöldi.
Háhyrningurinn í fjörunni í gærkvöldi. Vísir/Jón Ísak

Slökkviliðsmenn hafa haldið háhyrningi sem strandaði í Gorvík nærri Korpúlfsstöðum í Grafarvogi í gærkvöldi rökum í nótt með það fyrir augum að halda honum á lífi.

Davíð Friðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir háhyrninginn hafa losnað af sjálfsdáðum á háflóði á sjöunda tímanum en það hafi verið skammgóður vermir. Háhyrningurinn hafi tekið smá snúning í sjónum en sé kominn á svipaðar slóðir í flæðarmálinu á nýjan leik. 

Næstu skref eru til skoðunar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×